Líkamskrem

6.490 kr 60gr

Lúxuskennt og létt þeytt líkamskrem sem bráðnar inn í húðina og veitir henni langvarandi raka og næringu. Hentar sérstaklega vel fyrir þurra eða viðkvæma húð og hjálpar til við að endurheimta mýkt og þægindi frá toppi til táar. Róar húðina, dregur úr ertingu, gefur henni fallegan ljóma og hjálpar til við að gera hana fyllri og mýkri.

Innihaldsefni: Tallow af frjálsum nautgripum frá Hraunsnefi, shea butter, jojoba olía, castor olía, rosehip olía, lemongrass, lemon og teatree olíur fyrir ilm.

Notkunarleiðbeiningar:

Berið hæfilegt magn á hreina húð og nuddið mjúklega inn þar til kremið hefur frásogast. Notið daglega eða eftir þörfum, sérstaklega á þurr svæði eins og olnboga, hné og hæla.

Gott ráð: Berið kremið á örlítið raka húð eftir sturtu eða bað til að hjálpa húðinni að varðveita rakann og halda henni silkimjúkri lengur.

Varúð: Aðeins til útvortis notkunar. Forðist snertingu við augu. Hættið notkun ef erting kemur fram. Geymið á köldum, þurrum stað, fjarri beinu sólarljósi. Notið hreinar og þurrar hendur við notkun.