Charcoal and Lemongrass Sápa

2.990 kr Tallow sápa

Handgerð tólgarsápa með virkum kolum, sítrónugrasi og sítrónu

Náttúruleg og mild sápa úr íslenskri nautatólg sem hreinsar húðina og skilur hana eftir mjúka og ferska.

Sápan inniheldur virk kol sem hjálpa til við að fjarlægja óhreinindi og umframfitu af yfirborði húðarinnar. Næringarrík nautatólg, sheasmjör og vandlega valdar jurtaolíur mynda mjúka, kremkennda froðu sem hreinsar án þess að húðin upplifist óþarflega þurr.

Ilmkjarnaolíur úr sítrónugrasi og sítrónu gefa sápunni ferskan, léttan sítrusilm.

Eiginleikar

Hreinsar óhreinindi og umframfitu af húðinni.

Myndar mjúka og kremkennda froðu.

Inniheldur íslenska nautatólg, sheasmjör og jurtaolíur.

Ferskur ilmur af sítrónugrasi og sítrónu.

Hentar vel til daglegrar notkunar á hendur og líkama.

Notkun: Bleytið sápuna og nuddið milli handanna eða beint á raka húð þar til mjúk froða myndast. Skolið vandlega af. Látið sápuna þorna á milli notkunar til að lengja endingartímann.