Andlits Espresso
Endurnærandi andlitskrem með kaffi sem vekur húðina til lífsins, eykur náttúrulegan ljóma og veitir henni orku fyrir daginn. Formúlan hjálpar til við að draga úr þrota, bæta yfirbragð húðarinnar og styðja við sterkan og heilbrigðan varnarhjúp.
Innihaldsefni: Tallow af frjálsum nautgripum frá Hraunsnefi, kaffi, rosehip olía, castor olía, e-vítamín olía, vanilla og kanil olíur fyrir ilm
Notkunarleiðbeiningar:
Berið lítið magn á hreina húð andlits og háls að morgni. Nuddið varlega inn í húðina með léttum, uppávið strokum þar til kremið hefur frásogast. Hentar vel sem hluti af daglegri morgunrútínu.
Gott ráð: Fyrir frísklegra yfirbragð má nudda kremið varlega inn með léttum hreyfingum, sérstaklega á svæðum þar sem húðin virðist þreytt. Forðist beina snertingu við augu.
Varúð: Aðeins til útvortis notkunar. Forðist snertingu við augu. Hættið notkun ef erting kemur fram. Geymið á köldum, þurrum stað, fjarri beinu sólarljósi. Notið hreinar og þurrar hendur við notkun.